Fréttayfirlit
Úrslit í ljóðasamkeppninni Ljóð unga fólksins 2008

Þöll, samstarfshópur um barnamenningu á bókasöfnum, efndi til ljóðasamkeppni fyrir ungt fólk á aldrinum 9-16 ára og tók Borgarbókasafn þátt í verkefninu.
Þátttakendur skiptust í tvo aldurshópa, 9-12 ára og 13-16 ára. Þetta er í sjötta sinn sem keppnin er haldin og nú eins og áður verður gefin út bók með verðlaunaljóðunum ásamt úrvali annarra ljóða úr keppninni.
Verðlaun voru veitt fyrir sex ljóð. Fulltrúi Borgarbókasafns afhenti Svanhildi Sverrisdóttur nemanda í 7. bekk í Víkurskóla viðurkenningu fyrir ljóðið sitt sem heitir Esjan. Aðrir verðlaunahafar eru frá Akranesi, Akureyri, Borgarnesi, Mosfellsbæ og Selfossi.
Esjan eftir Svanhildi Sverrisdóttur 12 ára
Esjan er stór
eins og hávaxin kona
með hvíta ullarhúfu
liggjandi á bakinu
með bumbuna upp í loftið.
Hún er eins og yngismær.
Berháttuð teygir hún sig letilega
eftir náttsloppnum,
finnst hana vanta sæng.
Sólin hefur klætt hana úr náttfötunum
á meðan hún svaf.
,,Furðulegir eru draumar manns á nóttunni.“
24.04.2008
Sumardagurinn fyrsti
Loforðið og Skólasöngleikurinn vinsælastar.
Bókaverðlaun barnanna 2007 voru afhent á sumardaginn fyrsta í aðalsafni Borgarbókasafns Grófarhúsi.
Borgarbókasafn veitir verðlaunin hvert ár fyrir tvær bækur aðra frumsamda og hina þýdda. 6-12 ára börn velja bækurnar og fer valið fram í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Þetta er í sjöunda sinn sem verðlaunin eru veitt og að þessu sinni tóku rúmlega 5 þúsund börn þátt í kosningunni.
Hildur Baldursdóttir barnabókavörður afhenti verðlaunin en þau hlutu Hrund Þórsdóttir höfundur Loforðsins og Snorri Hergill Kristjánsson þýðandi Skólasöngleiksins en sú bók er byggð á sjónvarpsmynd sem mörg börn þekkja. Tíu heppnir þátttakendur fengu einnig verðlaun, bækurnar Dansar Elías? eftir sænsku skáldkonuna Katarinu Kieri og Einstök mamma eftir Bryndísi Guðmundsdóttur en þessar bækur hlutu barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar sem afhent voru síðasta vetrardag.
Að lokinni verðlaunaafhendingunni var sólarhátíð í Borgarbókasafni. Helga Arnalds sýndi Sólarsögu, Heimskór barna söng undir stjórn Möggu Stínu og Ólafar Sverrisdóttir og börn föndruðu í sólarföndursmiðju.
28.03-16.04.2008
AAA!!!
Sýning á myndasögum á bókatorgi, Borgarbókasafninu Grófarhúsi. Tilefnið var útgáfa AAA!!!, nýs myndasögublaðs nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík.
16.04.2008
Bókaspjall í Gerðubergssafni
Úlfhildur Dagsdóttir kynnti teiknimyndasögur safnsins í bókaspjalli miðvikudaginn 16. apríl kl. 20.
02.04-05.04.2008
Hundrað bóka ratleikur og Æringi í Kringlunni.
Í tilefni af alþjóðlega barnabókadeginum var barnabókadagskrá í Kringlunni dagana 2.- 5. apríl.
Sögubíllinn Æringi var við Kringluna og þar var boðið upp á sögustundir frá kl. 13-18 alla dagana.
Á 2. hæð undir Stjörnutorgi var sýning á myndskreytingum úr bókum Kristínar Steinsdóttur, handhafa Sögusteins 2008.
Í Kringlusafni og í bókaverslunum Eymundsson gátu snjallir krakkar nálgast þátttökublöð og tekið þátt í bráðskemmtilegum ratleik. Hann fólst í því að þátttakendur fóru milli fjögurra stöðva þar sem finna mátti svör við spurningum sem voru á þátttökublöðunum. 100 heppnir krakkar fengu bókaverðlaun.
Dagskráin var samstarfsverkefni Borgarbókasafns, bókaverslana Eymundsson og IBBY á Íslandi
15.03.2008
Heimsókn kólumbískra flóttamanna
Laugardaginn 15. mars komu 25 manns úr kólumbíska flóttamannahópnum sem kom til landsins í október síðastliðnum í heimsókn í Borgarbókasafnið í Grófarhúsi. Starfsmenn kynntu safnið á spænsku fyrir bæði börn og fullorðna.
Markmið heimsóknarinnar var að kynna safnið sem stað þar sem hægt er að nálgast bókmenntir, tónlist, bíómyndir og myndlist, og einnig sem stað þar sem hægt er að lesa blöðin, læra og finna bæði upplýsingar og góðan félagsskap. Sérstök áhersla var lögð á að benda þessum nýju íbúum á að safnið er opið öllum, hvaðan sem þeir koma og að þjónusta þess er ódýr og í boði alla daga.
14.03.2008
Auður Vésteinsdóttir sýnir í Artóteki
Auður Vésteinsdóttir myndlistarmaður sýnir í Artóteki Borgarbókasafns á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15.
Auður lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist frá textíldeild skólans árið 1972. Hún lauk námi í uppeldis- og kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 1989.
Auður hefur haldið ellefu einkasýningar á Íslandi og erlendis og tekið þátt í á fimmta tug samsýninga.
Myndefnið sækir Auður einkum í náttúruna en litbrigði, form og línuspil hafa verið aðalviðfangsefni hennar um árabil. Sýningin stendur til 20. apríl. Á henni eru collageverk og textílverk ofin með hör, ull og hrosshári.
09.03.2008
Töfrar efnafræðinnar í aðalsafni
Sunnudaginn 9. mars komu tveir efnafræðinemar í aðalsafn Borgarbókasafns og skemmtu gestum. Þeir gerðu ýmis konar tilraunir, létu rjúka úr flöskum, tróðu ofurvöxnu frauðplasti ofan í litla skál, bjuggu til fílatannkrem, breyttu vatni í kók, breyttu lit á vatni í blátt, rautt, gult eða grænt með því einu að hræra í því, kveiktu í ísmolum og enduðu á því að galdra upp bál í stórri skál.
Áhorfendur sem voru á ýmsum aldri skemmtu sér vel, jafnvel þeir yngstu sátu agndofa allan tímann eða þær 40 mínútur sem skemmtunin stóð.
01.03.2008
Pater Jón Sveinsson - en kallaðu mig Nonna
Sýning í Gerðubergssafni í tilefni þess að á síðasta ári voru 150 ár liðin frá fæðingu Jóns Sveinssonar, Nonna.
Sýningin stendur til 7. apríl.
22.02.2008
Sögubíllinn Æringi rúllaði af stað frá leikskólanum Tjarnarborg 22. febrúar
Æringi, sem er litli bróðir bókabílsins Höfðingja, ætlar að heimsækja alla leikskóla Reykjavíkur og bjóða börnunum í sögustund.
Efnt var til samkeppni meðal myndlistarmanna um skreytingar á sögubílinn og bar Brian Pilkington sigur úr býtum. Ævintýralegar myndir hans sem meðal annars sýna tröll, dreka, úlf, grísi og börn prýða nú bílinn.
Verkefnisstjóri sögubílsins, leikkonan María Pálsdóttir, mun ásamt barnabókavörðum Borgarbókasafns skipuleggja ferðir Æringja. Ætlunin er að lesa og segja sögur í bílnum en einnig eru uppi áform um samstarf við einstaklinga og stofnanir. Sögubílsstjórinn auglýsir sérstaklega eftir eldri borgurum sem langar að koma í bílinn og segja þeim yngri frá atburðum eða aðstæðum úr eigin bernsku. Það verður ánægjulegt að brúa kynslóðabilið í sögubílnum.
Dagskrá Æringja
Allar nánari upplýsingar veitir María Pálsdóttir í síma 664 7718, maria.palsdottir@reykjavik.is
Hekla hf og Þróunarsjóður leikskólaráðs styrkja verkefnið
09.02.2008
Heimsdagurinn á Vetrarhátíð
Heimsdagur á Vetrarhátíð var haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 9. febrúar. Veðurguðirnir voru fremur stilltir þann dag svo fólk komst að mestu leyti óáreitt til að njóta alls þess sem í boði var. Í Gerðubergssafni var sýnt skuggaleikhús. Helga Arnalds kom með leikhúsið sitt, Tíu fingur, og sýndi leikritið Sólarsagan. Að leikritinu loknu gátu gestir spreytt sig á að búa til fígúrur og varpa þeim upp í skuggaleikhús.
Á safninu var einnig hægt að taka þátt í fánagetraun þar sem tengja átti saman lönd og fána. Dregið var í lok dags og svo skemmtilega vildi til að vinningshafinn var enn í húsinu að skemmta sér og skokkaði glaður og ánægður inn á bókasafnið til að ná í verðlaunin. Gestir safnsins þennan dag voru rúmlega átta hundruð.
08.02.2008
Safnanótt á Vetrarhátíð
Veðrið var ekki alveg upp á sitt besta föstudagskvöldið 8. febrúar þegar Safnanóttin var haldin. Þrátt fyrir það mættu um 40 manns eða rúmlega það til að fylgjast með Kristínu Marju Baldursdóttur rithöfund opna sýningu á verkum sem hún hafði valið úr Artótekinu. Kristín Marja tók síðan fyrstu pensilstrokurnar á striga, fyrir hönd sögupersónu sinnar Karítasar Jónsdóttur, og aðrir héldu svo áfram með verkið.
Vegna veðurofsans var það sameiginleg ákvörðun þeirra sem stóðu að Safnanótt að henni lyki kl. 22.
07.02.2008
Ljóðaslamm á Vetrarhátíð
Halldóra Ársælsdóttir sigraði í fyrstu ljóðaslammskeppni Borgarbókasafns sem haldin var á opnunarkvöldi Vetrarhátíðar, fimmtudaginn 7. febrúar.
Halldóra, sem er 15 ára, söng eigið ljóð sem heitir Verbréfadrengurinn við lagið Litli trommuleikarinn og spilaði hún sjálf undir á gítar. Ljóðið fjallar um raunir titilpersónunnar á nokkuð kómískan hátt og skapaðist skemmtileg spenna milli ljóðsins og lagsins sem Halldóra valdi að syngja það við.
Í öðru sæti voru þeir Gísli Hvanndal og Gunnar Jónsson með kraftmikið atriði sem þeir kölluðu Ljóð-hljóð en það voru tvö ljóð sem Gísli slammaði við hljóðverk sem Gunnar stjórnaði.
Í þriðja sæti var svo Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir en hún flutti ljóð sitt Hrap á afar leikrænan og lifandi hátt.
Dagskráin var tekin upp og Hér má sjá upptöku af atriðunum sem urðu í 1.-3. sæti.
Og hér eru ljósmyndir frá keppninni.
Alls tóku 17 ungmenni á aldrinum 14 - 22 ára þátt í keppninni en atriðin voru 10. Dagskráin var afar fjölbreytt og valið sem dómnefndin stóð frammi fyrir allt annað en auðvelt. Hugtakið ljóðaslamm var frjálslega túlkað og í raun eina krafan sú að flutt væri frumsamið ljóð eða stuttur prósi og ekki væri um hefðbundinn upplestur að ræða heldur einhvers konar skapandi framsetningu á verkinu. Þarna mátti sjá dansverk, leikþátt í bundnu máli og leiklesin ljóð svo eitthvað sé nefnt. Keppendum var frjálst að nota tónlist og myndefni, syngja, rappa, leika og hvað eina.
Eftitaldir listamenn tóku þátt í dagskránni:
Saga Eir Svanbergsdóttir: Spennuljóð. Saga söng ljóðið við eigið lag
Brynjar Birgisson: Miklu meira en neistar. Brynjar slammaði ljóðið
Víngnir pÁ: Fullur af spennu. Víngnir flutti nokkur ljóð við tónlist dj flugvél og geimskip og sýndi eigin teikningar og ljósmyndir á tjaldi
Valdimar G. Guðmundsson sem Kórinn: Taktu mig aftur í sátt. Raftónlist og söngur
Temmilega töff (Anna Margrét Ásbjarnardóttir, Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Ragnheiður Erlingsdóttir og Steinunn Jónsdóttir): Týnd. Dans- og ljóðverk
Halldóra Ársælsdóttir: Verbréfadrengurinn. Söngur og gítarleikur
Fjóla Kim og Steinunn Selma Jónsdóttir: Spennan í loftinu. Fjóla flutti ljóðið sitt við tónlist eftir Vivaldi og Steinunn dansaði
Gísli Hvanndal og Gunnar Jónsson: Ljóð-hljóð. Tvö ljóð slömmuð með tónlist
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir: Hrap. Guðrún flutti ljóðið á leikrænan hátt
Ingi Vífill Guðmundsson og Thelma Marín Jónsdóttir: Sannleikurinn stakur. Leikþáttur í bundnu máli
Í dómnefnd sátu þau Bóas Hallgrímsson tónlistarmaður, Bragi Ólafsson rithöfundur, Freyr Eyjólfsson útvarps- og tónlistarmaður, María Pálsdóttir leikkona og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur
Kynnir kvöldsins var Elís Pétursson.
05.02.2008
Ljósmyndaspjall í Foldasafni
Þriðjudaginn 5. febrúar kl. 19:30 kom áhugaljósmyndarinn Óskar Páll í Foldasafn og spjallaði við gesti um ljósmyndun og ýmislegt tengt myndatöku á stafrænar vélar.
25.01.2008
Sólheimasafn 60 ára
Sólheimasafn er 60 ára um þessar mundir. Þann 27. janúar 1948 var útibú III opnað að Hlíðarenda við Langholtsveg. Þar var safnið í nokkra mánuði en flutti í ágúst 1948 í 15 fermetra herbergi að Efstasundi 26. Þar var það til húsa uns Sólheimasafn opnaði í núverandi húsnæði í janúar 1963.
Í tilefni afmælisins var gestum safnsins boðið uppá konfekt með kaffinu föstudaginn 25. janúar og þann dag var safnið skreytt blöðrum merktum 60 ára.
Til baka