Halldóra Ársælsdóttir sigraði í fyrstu ljóðaslammskeppni Borgarbókasafns sem haldin var á opnunarkvöldi Vetrarhátíðar, fimmtudaginn 7. febrúar. Halldóra, sem er 15 ára, söng eigið ljóð sem heitir Verbréfadrengurinn við lagið Litli trommuleikarinn og spilaði hún sjálf undir á gítar. Ljóðið fjallar um raunir titilpersónunnar á nokkuð kómískan hátt og skapaðist skemmtileg spenna milli ljóðsins og lagsins sem Halldóra valdi að syngja það við. Í öðru sæti voru þeir Gísli Hvanndal og Gunnar Jónsson með kraftmikið atriði sem þeir kölluðu Ljóð-hljóð en það voru tvö ljóð sem Gísli slammaði við hljóðverk sem Gunnar stjórnaði. Í þriðja sæti var svo Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir en hún flutti ljóð sitt Hrap á afar leikrænan og lifandi hátt. Dagskráin var tekin upp og Hér má sjá upptöku af atriðunum sem urðu í 1.-3. sæti.Og hér eru ljósmyndir frá keppninni.
Alls tóku 17 ungmenni á aldrinum 14 - 22 ára þátt í keppninni en atriðin voru 10. Dagskráin var afar fjölbreytt og valið sem dómnefndin stóð frammi fyrir allt annað en auðvelt. Hugtakið ljóðaslamm var frjálslega túlkað og í raun eina krafan sú að flutt væri frumsamið ljóð eða stuttur prósi og ekki væri um hefðbundinn upplestur að ræða heldur einhvers konar skapandi framsetningu á verkinu. Þarna mátti sjá dansverk, leikþátt í bundnu máli og leiklesin ljóð svo eitthvað sé nefnt. Keppendum var frjálst að nota tónlist og myndefni, syngja, rappa, leika og hvað eina.
Eftitaldir listamenn tóku þátt í dagskránni:Saga Eir Svanbergsdóttir: Spennuljóð. Saga söng ljóðið við eigið lagBrynjar Birgisson: Miklu meira en neistar. Brynjar slammaði ljóðiðVíngnir pÁ: Fullur af spennu. Víngnir flutti nokkur ljóð við tónlist dj flugvél og geimskip og sýndi eigin teikningar og ljósmyndir á tjaldiValdimar G. Guðmundsson sem Kórinn: Taktu mig aftur í sátt. Raftónlist og söngurTemmilega töff (Anna Margrét Ásbjarnardóttir, Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Ragnheiður Erlingsdóttir og Steinunn Jónsdóttir): Týnd. Dans- og ljóðverk Halldóra Ársælsdóttir: Verbréfadrengurinn. Söngur og gítarleikurFjóla Kim og Steinunn Selma Jónsdóttir: Spennan í loftinu. Fjóla flutti ljóðið sitt við tónlist eftir Vivaldi og Steinunn dansaðiGísli Hvanndal og Gunnar Jónsson: Ljóð-hljóð. Tvö ljóð slömmuð með tónlistGuðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir: Hrap. Guðrún flutti ljóðið á leikrænan háttIngi Vífill Guðmundsson og Thelma Marín Jónsdóttir: Sannleikurinn stakur. Leikþáttur í bundnu máli
Í dómnefnd sátu þau Bóas Hallgrímsson tónlistarmaður, Bragi Ólafsson rithöfundur, Freyr Eyjólfsson útvarps- og tónlistarmaður, María Pálsdóttir leikkona og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur Kynnir kvöldsins var Elís Pétursson.