Veðrið var ekki alveg upp á sitt besta föstudagskvöldið 8. febrúar þegar Safnanóttin var haldin. Þrátt fyrir það mættu um 40 manns eða rúmlega það til að fylgjast með Kristínu Marju Baldursdóttur rithöfundi opna sýningu á verkum sem hún hafði valið úr Artótekinu. Kristín Marja tók síðan fyrstu pensilstrokurnar á striga, fyrir hönd sögupersónu sinnar Karítasar Jónsdóttur, og aðrir héldu svo áfram með verkið.Vegna veðurofsans var það sameiginleg ákvörðun þeirra sem stóðu að Safnanótt að henni lyki kl. 22.