Heimsdagur á Vetrarhátíð var haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 9. febrúar. Veðurguðirnir voru fremur stilltir þann dag svo fólk komst að mestu leyti óáreitt til að njóta alls þess sem í boði var. Í Gerðubergssafni var sýnt skuggaleikhús. Helga Arnalds kom með leikhúsið sitt, Tíu fingur, og sýndi leikritið Sólarsagan. Að leikritinu loknu gátu gestir spreytt sig á að búa til fígúrur og varpa þeim upp í skuggaleikhús.Á safninu var einnig hægt að taka þátt í fánagetraun þar sem tengja átti saman lönd og fána. Dregið var í lok dags og svo skemmtilega vildi til að vinningshafinn var enn í húsinu að skemmta sér og skokkaði glaður og ánægður inn á bókasafnið til að ná í verðlaunin. Gestir safnsins þennan dag voru rúmlega átta hundruð.