Sunnudaginn 9. mars komu tveir efnafræðinemar í aðalsafn Borgarbókasafns og skemmtu gestum. Þeir gerðu ýmis konar tilraunir, létu rjúka úr flöskum, tróðu ofurvöxnu frauðplasti ofan í litla skál, bjuggu til fílatannkrem, breyttu vatni í kók, breyttu lit á vatni í blátt, rautt, gult eða grænt með því einu að hræra í því, kveiktu í ísmolum og enduðu á því að galdra upp bál í stórri skál. Áhorfendur sem voru á ýmsum aldri skemmtu sér vel, jafnvel þeir yngstu sátu agndofa allan tímann eða þær 40 mínútur sem skemmtunin stóð.