Í tilefni af alþjóðlega barnabókadeginum var barnabókadagskrá í Kringlunni dagana 2.- 5. apríl. Sögubíllinn Æringi var við Kringluna og þar var boðið upp á sögustundir frá kl. 13-18 alla dagana.Á 2. hæð undir Stjörnutorgi var sýning á myndskreytingum úr bókum Kristínar Steinsdóttur, handhafa Sögusteins 2008.
Í Kringlusafni og í bókaverslunum Eymundsson gátu snjallir krakkar nálgast þátttökublöð og tekið þátt í bráðskemmtilegum ratleik. Hann fólst í því að þátttakendur fóru milli fjögurra stöðva þar sem finna mátti svör við spurningum sem voru á þátttökublöðunum. 100 heppnir krakkar fengu bókaverðlaun. Dagskráin var samstarfsverkefni Borgarbókasafns, bókaverslana Eymundsson og IBBY á Íslandi