Fjöldi manns lagði leið sína í aðalsafn Borgarbókasafns fyrsta vetrardag, 25. október. Reykjavíkurtorg fylltist þegar Kristín Helga las úr bók sinni „Fíasól og tækjalausi dagurinn“ og hlustuðu söguþyrstir krakkar á öllum aldri af athygli á frásögn um uppátæki Fíusólar. Þrjár sögustundir voru í sögubílnum Æringja og komust færri að en vildu. Mikið var spurst fyrir um sögubílinn og kíktu margir inn til að skoða.
Mikið var að gera á öllu safninu og ríkti hátíðarstemning þar sem heilu fjölskyldurnar komu og gerðu sér dagamun.