Fara beint í leiðarkerfi vefsins.
Vefsíða Borgarbókasafns
Fréttayfirlit
05.11.2008
Söguhringur kvenna
Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni Borgarbóksafnsins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna og er hann ætlaður erlendum konum. Síðastliðinn sunnudag, 9. nóvember, var fyrsti söguhringurinn og er óhætt að segja að hann hafi tekist vel. Konur frá m.a. Albaníu, Póllandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Rússlandi, Venezuela og El Salvador hittust, spjölluðu saman og deildu sögum sínum hver með annarri. Ekki vantaði áhugann og eftir samveruna voru konurnar fróðari um það hvernig er að koma til Íslands sem útlendingur, kynnast samfélaginu og læra tungumálið. Vera Sörensen, listakona frá Úkraínu, var gestur söguhringsins og kynnti myndlist sína.
Söguhringurinn verður fyrsta sunnudag í mánuði og er áformað að gera ýmislegt í tengslum við hann, svo sem að fara í leikhús og á listsýningar. Konur af erlendum uppruna eru hvattar til að mæta, deila sögu sinni, kynnast sögum annarra kvenna og njóta samveru og menningar með þeim.
Næsti söguhringur verður 7. desember kl. 15.00 á 6. hæð í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 og þá verður m.a talað um jólasiði. Sérstakur gestur verður Kjuregei Alexandra Argunova, listakona.
Til baka
Senda
Prenta
Senda á Facebook
2012
2011
2010
2009
2008
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi
Lei�arkerfi vefsins
Afgreiðslutími
Barnasíðan
Söfn og bílar
Þjónusta
Gjaldskrá
Um safnið
Fl�tilei�ir
Skráðu þig á póstlista
Hafðu samband
Veftré
Skipta um leturst�r�
A-
A+
Tungum�l
Polski version
English version
Icelandic version
Spanish version
Lithauen version
�� ert h�r
Forsíða
::
Fréttir
Leitarvefur sem býður upp á leitir í fjölbreyttum safnkosti bókasafna og efni valinna sérsafna