Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni Borgarbókasafns og næsta sunnudag kl. 15.00 mun Herdís Egilsdóttir lesa úr nýjustu bók sinni Edda týnist í eldgosinu. Herdís hlaut á dögunum verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.