Í lok nóvember og byrjun desember heimsóttu 10. bekkingar úr nokkrum grunnskólum Reykjavíkurborgar aðalsafn Borgarbókasafn eldsnemma að morgni eða kl. 9. Í þessum heimsóknum var boðið upp á upplestur úr nýjum bókum. Lesið var upp úr Myrká eftir Arnald Indriðason - Áslákur Ingvarsson menntaskólanemi las, Ofsa eftir Einar Kárason - höfundur las og Ljósaskiptum eftir Stephenie Meyer- Magnea J. Matthíasdóttir þýðandi bókarinnar las. Að loknum lestri fengu krakkarnir epli og mandarínur sem þau þáðu með þökkum.