Daglega á virkum dögum aðventunnar má sjá hópa af endurskinsklæddum leikskólabörnum á ferð um borgina.
Bókasafnið í Kringlunni heimsækja á þessum vikum hátt í þriðja hundrað börn í skipulögðum heimsóknum. Börnin rifja upp gömlu jólasveinana og tiltæki þeirra og heyra sögur sem hæfa tilefninu. Heimsóknin endar svo með því að öllum er boðið upp á jólasafa og piparkökur.
Aðventan er góður tími til að heimsækja Borgarbókasafn. Á aðventunni er boðið upp á sögustundir fyrir leikskólabörn í öllum söfnum. Fjöldi þeirra barna sem kemur á safnið á þessum tíma skiptir hundruðum og er óhætt að segja að gleði barnanna og starfsmanna endurómi um söfnin.