Ljóðaslamm verður á Vetrarhátíð í Reykjavík 2009. Keppnin mun fara fram í Borgarbókasafni á Safnanótt, föstudagskvöldið 13. febrúar. Slammið er ætlað ungu fólki og þemað er hrollur.
Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs eða ljóða þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist og miðað við að flytjandi eða flytjendur fari með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leikrænni tjáningu. Hvort sem er einstaklingur eða hópur getur flutt ljóðið.
Hægt er að skrá sig hjá Kristínu Viðarsdóttur, kristin.vidarsdottir@reykjavik.is sem og í afgreiðslu allra safna Borgarbóksasafns. Skráningarfrestur er til 15. desember 2008. Skrá þarf nafn, aldur, tölvupóstfang og símanúmar.
Fimm manna dómnefnd velur besta ljóðið og flutning þess. Í henni situr fyrir hönd Borgarbókasafns Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur. Aðrir eru Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður og tónlistarmaður, Bragi Ólafsson rithöfundur, Bóas Hallgrímsson tónlistarmaður og Ilmur Kristjánsdóttir leikkona.
Þeir sem lenda í þremur efstu sætunum hljóta verðlaun, auk þess sem atriði þeirra verða flutt á Rás 2. Keppnin verður einnig tekin upp á myndbönd og þrjú efstu birt á Bókmenntavefnum, www.bokmenntir is og á YouTube.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Viðarsdóttir, kristin.vidarsdottir@reykjavik.is ,sími 411 6123
Almenn viðmið fyrir þátttakendur:
Hvert atriði taki í mesta lagi 5 mínútur.
Ljóðið verður að vera á íslensku.
Gæta verður þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og / eða hópum.
Texti 40%, flutningur 60%.
Tæknimál verða að vera einföld (einn skjávarpi og tjald t.d., ekki aðstæður fyrir sviðsmynd nema það sem fólk getur auðveldlega tekið með sér inná sviðið og út af því aftur).
Hámarksfjöldi í hóp: 5 manns.