Eftir áratugs einangrun bókabílsins Höfðingja frá móðurstofnuninni Borgarbókasafni, er hann loks kominn í beinlínusamband við bókasafnskerfið Gengni. Áður var ekki hægt að leita í gagnagrunni safnanna í bílnum, ekki hægt að sjá hvort lánþegar væru með gild skírteini, og bókaleit byggðist á minni starfsmanna.
Við bókabílafólk þökkum UTM, og þá sérstaklega Sveini Óla Garðarssyni, sem leiddi okkur í gegn um ferilinn, með mannsskilningi og, sem við metum svo mjög, á mannamáli, það eru ekki allir tölvumenn sem kunna þá kúnst.