Miðvikudagsmorguninn 10. desember var fjölmennt í aðalsafni Borgarbókasafnsins. Einn hópur níu ára barna hafði boðað komu sína í sögustund og las María Þórðardóttir jólasögu um múmínálfana og Grýlusögu fyrir hópinn. Eftir sögustundina sökktu krakkarnir sér í lestur. Svo birtust óvænt tveir stórir barnahópar, annar frá Grænuborg og hinn alla leið ofan úr Grafarvogi. Voru börnin í bæjarferð og ákváðu að skella sér á bókasafnið. Barnadeildin er það stór og margskipt að hún ber með góðu móti svona marga gesti, það eina sem vantaði voru fleiri snagar til að hengja upp föt. Allir fóru glaðir heim, sumir með bókamerki og aðrir með smáköku.
Auk barnanna var hópur af konum af erlendum uppruna í heimsókn á safninu. Konurnar eru í íslenskunámi og á sjálfstyrkingarnámskeiði í Alþjóðahúsinu og komu þær í kynningu og ratleik á bókasafninu, en sú þjónusta er hluti af fjölmenningarlegu starfi safnsins. Eftir kynninguna og ratleikinn voru þær leystar út með gjafakorti fyrir bókasafnsskírteini, bókamerkjum og upplýsingum um safnið. Þær voru yfir sig ánægðar með heimsóknina og vonumst við til að sjá þær sem oftast hér á safninu í framtíðinni.