Njótið aðventunnar og fallegrar tónlistar á bókasafninu. Sunnudaginn 14. desember kl. 15.00 verða tónleikar í aðalsafni. Strengjabaunirnar, strengjahljómsveit ungmenna, munu flytja jólalög undir stjórn Helgu Þórarinsdóttur.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!