Frá 27. nóvember hefur sögubíllinn Æringi verið á fullri ferð að heimsækja leikskóla borgarinnar í tilefni aðventunnar. Í þetta sinn tekur Æringi ömmu með sér en hún hefur frætt börnin um jólin eins og þau voru í gamla daga. Leikskólarnir hafa keppst um að fá ömmu í heimsókn og færri fengið en vildu.
Það eru reyndar sex ömmur sem skiptast á að koma á leikskólana og allar orðnar langömmur enda á aldrinum 77-83. Þær heita Sólveig Ingimarsdóttir, Guðný Jómasdóttir, Doris Jelle Konráðsdóttir, Ragna Kristín Árnadóttir, Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir og Edda Bjarnadóttir.
Sumar ömmurnar koma með muni og skraut að sýna krökkunum en auðvitað var mest allt búið til í höndunum í gamla daga og leikföngin stundum bara leggur og skel og jólagjafirnar kerti og spil.
Krakkarnir hafa sungið fyrir ömmurnar og stundum hefur verkefnisstjóri Æringja, Ólöf Sverrisdóttir, breyst í Grýlu öllum að óvörum. En sem betur fer tekst alltaf að galdra hana til baka.
Krakkarnir fá síðan jólasveinabókamerki og þeir hvattir til að koma 12 sinnum í viðbót á bókasafnið fyrir jól til að safna þeim öllum.
Allt hefur þetta vakið mikla ánægju og hafa starfsmenn leikskólanna og börnin borið ömmurnar áðurnefndu og Ólöfu Sverrisdóttur, verkefnisstjóra Æringja á höndum sér og boðið uppá kaffi og kökur.