Fréttayfirlit

Getraun mánaðarins

Borgarbókasafn bryddar upp á þeirri nýbreytni á nýju ári að bjóða upp á mánaðarlega getraun þar sem spurt verður úr bókmenntum, kvikmyndum, tónlist og fleiru. Dregið verður úr réttum lausnum í lok hvers mánaðar og fær vinningshafinn gjafakort fyrir nýju bókasafnsskírteini eða endurnýjun á því gamla.

Getraun janúarmánaðar tengist bókmenntum, kvikmyndum auk eðlis- og efnafræði.

Spurt er um efnahvarf sem leitt getur til böls jafnt sem blessunar. Afleiðing þess kemur við sögu í a.m.k. fjórum íslenskum skáldverkum sem út komu á síðasta ári. Um er að ræða þrjár glæpasögur sem gerast í nútímanum og skáldsögu sem fjallar um róstur fyrr á öldum. Birtingarform téðs efnahvarfs gegnir og lykilhlutverki í einni þekktustu stórslysamynd sögunnar sem framleidd var á áttunda áratug síðustu aldar. Sú skartaði tveimur nú brottföllnum en þá ofurfrægum og afarpíreygðum kvikmyndahetjum hverra minning tengist nú m.a. reiðhjólakúnstum og kappakstri um hlíðar San Fransiskóborgar

Hvað er efnahvarfið örlagaríka?
Nefnið a.m.k. tvær af skáldsögunum íslensku
og hvað hétu kvikmyndahetjurnar píreygðu?

Sendið svörin til gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is


Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�