Sjálfboðaliðar óskast fyrir heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn af erlendum upprunaHeimanámsaðstoð fyrir nemendur af erlendum uppruna hefst nú í byrjun febrúar. Markmið verkefnisins er að bjóða nemendum spennandi aðstöðu til heimanáms, einu sinni í viku, með aðstoð sjálfboðaliða. Fyrirhugað er að heimanámsaðstoðin verði á þriðjudögum í Borgarbókasafninu Gerðubergi frá kl. 15:15 til 16:45. Óskað er eftir sjálfboðaliðum sem er tvítugir hið minnsta og hafa að baki framhaldsskólamenntun. Hlutverk sjálfboðaliðans er að mynda tengsl við nemendurna, fara yfir námsefnið með þeim, skýra út fyrir þeim faghugtök og leiðbeina um lausnir verkefna. Gera má ráð fyrir að vikuleg skuldbinding sé um tvær klukkustundir.Sjálfboðaliðar vinna mikilvæg grasrótarstörf í samfélaginu sem að öðrum kosti er ekki sinnt. Með því að leggja starfskrafta sína að mörkum í sjálfboðnu starfi öðlast sjálfboðaliðinn nýja sýn á samfélag sitt, líf annarra og hlotnast reynsla og færni sem nýst getur í lífi og starfi.Hafir þú áhuga á að kynna þér verkefnið frekar eða bjóða þig fram til starfsins, er þér velkomið að hafa samband við Þór Gíslason, verkefnastjóra, hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands í síma: 545-0406, eða á netfangið: thorgisla@redcross.isVerkefnið er samstarfsverkefni Alþjóðahúss í Breiðholti, Borgarbókasafns í Gerðubergi og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands.