Borgarbókasafn Reykjavíkur stóð fyrir ljóðaslammi í fyrsta sinn á Vetrarhátíð í Reykjavík í febrúar á síðasta ári. Halldóra Ársælsdóttir sigraði með ljóðið „Verðbréfadrengurinn" eins og frægt er orðið. Næsta keppni mun fara fram föstudagskvöldið 13. febrúar á Safnanótt í Reykjavík og hefur skráning farið mjög vel af stað. Enn er þó hægt að skrá sig, en fresturinn rennur út 30. janúar. Hægt er að skrá sig hjá Kristínu Viðarsdóttur, kristin.vidarsdottir@reykjavik.is sem og í afgreiðslu allra safna Borgarbóksasafns. Þema ljóðaslammsins er hrollur og eins og fyrr er öllu ungu fólki frjálst að taka þátt.
Ljóðaslamm er túlkað frjálslega í þessari keppni, í raun er eina krafan sú að flutningur frumsamins ljóðs sé lifandi og má notast við leikræna tilburði, tónlist, myndlist, dans eða hvaðeina sem fólki dettur í hug. Fimm manna dómnefnd velur besta ljóðið og flutning þess. Í henni situr fyrir hönd Borgarbókasafns Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur. Aðrir eru Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður og tónlistarmaður, Bragi Ólafsson rithöfundur, Bóas Hallgrímsson tónlistarmaður og Ilmur Kristjánsdóttir leikkona.
Þeir sem lenda í þremur efstu sætunum hljóta verðlaun, auk þess sem atriði þeirra verða flutt á Rás 2. Keppnin verður einnig tekin upp á myndbönd og þrjú efstu birt á Bókmenntavefnum, www.bokmenntir.is og á YouTube.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Viðarsdóttir, kristin.vidarsdottir@reykjavik.is ,sími 411 6123
Almenn viðmið fyrir þátttakendur:Hvert atriði taki í mesta lagi 5 mínútur. Ljóðið verður að vera á íslensku. Gæta verður þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og / eða hópum. Texti 40%, flutningur 60%. Tæknimál verða að vera einföld (einn skjávarpi og tjald t.d., ekki aðstæður fyrir sviðsmynd nema það sem fólk getur auðveldlega tekið með sér inná sviðið og út af því aftur). Hámarksfjöldi í hóp: 5 manns.