Þá er komið að getraun febrúarmánaðar. Unnendur hryllingsmynda ættu að kætast að þessu sinni því getraunin tengist þeirri kvikmyndagrein.
1. Hver er morðinginn í kvikmyndinni Föstudagurinn 13. eða Friday the 13th?2. Í hvaða bíómynd spyr morðinginn væntanlegt fórnarlamb sitt ofangreindrar spurningar?3. Svaraði fórnarlambið rétt?4. Hvaða myndlistamaður gerði málverk (sjá hér að neðan) sem byggt er á lokasenu Föstudagsins 13.?
Sendið svör á gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is Dregið verður úr réttum lausnum í lok febrúarmánaðar. Vinningshafi fær gjafabréf fyrir nýju skírteini á Borgarbókasafni eða endurnýjun á því gamla.