Fréttayfirlit
Lausn á getraun janúarmánaðar
Viðbrögð við janúargetraun Borgarbókasafnsins voru stórfín og bárust mörg svör sem flest voru rétt.
Getraunin tengdist bókmenntum, kvikmyndum auk eðlis- og efnafræði og hljómaði svona:
Spurt er um efnahvarf sem leitt getur til böls jafnt sem blessunar. Afleiðing þess kemur við sögu í a.m.k. fjórum íslenskum skáldverkum sem út komu á síðasta ári. Um er að ræða þrjár glæpasögur sem gerast í nútímanum og skáldsögu sem fjallar um róstur fyrr á öldum. Birtingarform téðs efnahvarfs gegnir og lykilhlutverki í einni þekktustu stórslysamynd sögunnar sem framleidd var á áttunda áratug síðustu aldar. Sú skartaði tveimur nú brottföllnum en þá ofurfrægum og afarpíreygðum kvikmyndahetjum hverra minning tengist nú m.a. reiðhjólakúnstum og kappakstri um hlíðar San Fransiskóborgar
Hvað er efnahvarfið örlagaríka?
Nefnið a.m.k. tvær af skáldsögunum íslensku
og hvað hétu kvikmyndahetjurnar píreygðu?
Lausn:
Efnahvarfið er bruni, skáldsögurnar eru Vargurinn, Sjöundi sonurinn, Land tækifæranna og Ofsi, stórslysamyndin er Towering Inferno og kvikmyndahetjurnar píreygðu Steve McQueen og Paul Newman.
Vinningshafinn var Sigríður Elsa Óskarsdóttir og fær hún gjafakort fyrir fríu skírteini á Borgarbókasafni eða endurnýjun á því gamla.
Taktu þátt í getraun febrúarmánaðar!
Til baka