Fréttayfirlit
Sigurvegarar í Ljóðaslammi 2009
Borgarbókasafn Reykjavíkur hélt keppni í ljóðaslammi annað árið í röð á Safnanótt föstudaginn 13. febrúar. Þema kvöldsins var hrollur og er óhætt að segja að þátttakendur hafi brugðið upp fjölbreyttum myndum af því viðfangsefni og var metnaður þeirra mikill. Fimmtán ungmenni á aldrinum 15 til 21 árs tóku þátt að þessu sinni og var það samdóma álit dómnefndar að keppnin hafi verið mjög jöfn og afar erfitt að velja á milli atriða.
Sigurvegarar kvöldsins voru Ásta Fanney Sigurðardóttir og Ástríður Tómasdóttir en framlag þeirra bar heitið Eine kleine hrollvekja. Þótti dómnefnd þema keppninnar skila sér mjög vel í atriði þeirra, textinn var sterkur og flutningur góður í einfaldri en áhrifaríkri sviðsetningu. Í öðru sæti voru Bryndis Ósk Ingvarsdóttir, Júlíana Kristín Jóhannsdóttir og Thelma Björnsdóttir með Nartað í hjarta sem var bæði tilþrifamikið og hrollvekjandi. Í þriðja sæti var Kristján Klausen sem flutti Ég hélt, eigið lag og ljóð um hrollvekjandi fréttir í daglegu lífi okkar allra.
Upptökur af siguratriðunum þremur verða settar á Bókmenntavefinn og á YouTube fljótlega. Þá verða ljósmyndir þeirra Tuma Árnasonar og Þorsteins Camerons einnig birtar á hér á vefnum og á heimasíðu Borgarbókasafns.
Í dómnefnd voru Bóas Hallgrímsson tónlistarmaður, Bragi Ólafsson rithöfundur, Björn Unnar Valsson bókmenntafræðingur, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur.
Til baka