Fréttayfirlit
Sóla Grýludóttir í Æringja

Sögubíllinn Æringi heldur áfram ferð sinni um borgina og er nú að fara aðra umferð á leikskóla borgarinnar. Nú er það Sóla sem segir sögur. Hún er dóttir Grýlu en ekki hefur farið mikið fyrir henni undanfarið enda hefur hún verið í útlöndum síðastliðin 100 ár. Hún hefur lært heil ósköp af sögum og fékk vinnu hjá Borgarbókasafninu við að segja sögur og fær í staðinn að búa í Æringja. Henni þykir afskaplega vænt um börn og nýtur þess að skemmta þeim með sögulestri og söng.
Nú gefst frístundaheimilum einnig kostur á að fá Æringja í heimsókn og hefur það framtak Borgarbókasafnsins slegið í gegn. Sögubíllinn hefur undantekningalaust verið pantaður fyrir yngstu börnin á frístundaheimilunum. Að fá Sólu og Æringja í heimsókn er bæði skemmtileg upplyfting auk þess sem lesturinn og sögurnar eru gott innlegg í málþroska barnanna. Sögurnar eru af ýmsum toga en bæði íslenskar og erlendar þjóðsögur eru í hávegum hafðar.
Til baka