Föstudaginn 13. febrúar kl. 17:00 opnaði ljóðskáldið Kristín Svava Tómasdóttir sýningu á listaverkum sem hún valdi úr Artóteki Borgarbókasafns í Grófarhúsi. Verkin eru eftir ólíka myndlistarmenn og unnin á mismunandi hátt, en má þó greina sameiginlegan þráð í þeim þar sem maðurinn og viðvera hans kemur við sögu. Við opnunina stjórnaði Kristín Svava ljóðagjörningi sem fól í sér flutning á nýjasta verki Orðkestru íslenska lýðveldisins. Kristín Svava Tómasdóttir er fædd árið 1985. Hún leggur stund á BA-nám í sagnfræði við Háskóla Íslands og er með diplóma í portúgölsku frá útlendingadeild Háskólans í Coimbra. Hún hefur birt ljóð í ýmsum tímaritum og tekið þátt í ljóðaupplestrum frá árinu 2002, meðal annars í koníakskjallara, á hvalveiðibát og alls konar subbulegum krám að eigin sögn. Hún hefur tekið þátt í öllum fjórum alþjóðlegu ljóðahátíðum Nýhils og þriðju alþjóðlegu ljóðahátíð menningarsetursins Literaturhaus í Kaupmannahöfn. Kristín Svava hefur setið í stjórn útgáfufélagsins Nýhils frá 2008. Hún gaf út ljóðabókina Blótgælur hjá Bjarti haustið 2007 og var hún valin besta ljóðabókin af bóksölum það ár. Kristín Svava er starfandi bókavörður í Reykjavík.
Sýningin var hluti af dagskrá Vetrarhátíðar 2009 og stendur til 15. mars.