Deildarstjóri hjá Þjónustumiðstöð aldraðra að Norðurbrún, hafði samband við starfsmenn í Sólheimasafni til að athuga hvort safnið hefði einhvern til að lesa upp fyrir aldraða á Þjónustumiðstöð. Þórhallur Þórhallsson var settur í verkefnið og hefur hann nú lesið síðastliðna átta miðvikudaga framhaldssöguna um Bör Börsson.