Borgarbókasafn og Tungumálaver Laugalækjarskóla eru nú í samstarfi og er heimsókn á bókasafnið hluti af móðurmálskennslu nemenda. Markmiðið er m.a. að kynna starfsemi bókasafnsins og þá möguleika sem það býður upp á til að örva notkun móðurmálsins sem og íslensku.
Miðvikudaginn 18. mars kom hópur pólskra nemenda ásamt kennara í heimsókn í Gerðubergssafn. Börnin fóru m.a. í fjölmenningarlegan „Twister“, bjuggu til pólsk klippiljóð, báru Pönnukökutertuna á íslensku og pólsku saman og þýddu dýranöfn og hljóð þeirra af íslensku yfir á pólsku. Að lokum völdu þau sér pólska bók af bókasafninu til að nota í bókmenntaverkefni. Þessi fyrsta heimsókn í bókasafnið tókst ótrúlega vel og hlökkum við mikið til að taka á móti næsta hóp sem kemur í aðalsafn í næstu viku.
Hvað heita Pétur og Brandur á pólsku?
Fjölmenningarlegur „Twister“