Tveir starfsmenn Kínverska sendiráðsins, þau Guo Baoqi og Lei Yunxía, færðu Borgarbókasafni höfðinglega bókagjöf síðastliðinn miðvikudag, 25. mars. Bækurnar eru allar á ensku og fjölbreyttar að innihaldi, meðal annars sagnfræðirit, bækur um kínverska list, ferðahandbækur og fleira. Starfsmenn Borgarbókasafns eru ákaflega þakklátir fyrir þessa gjöf og efast ekki um að gestir safnsins verði það einnig.
Ingvi Þór Kormáksson, Guo Baoqi, Lei Yunxia og Anna Torfadóttir.