Fréttayfirlit
Getraun aprílmánaðar
Getraunin snýst að þessu sinni um tónlist og íslenskar bókmenntir.
Spurt er um bræður þrjá í skugga ofurfrægra bræðra. Bræðurnir þeir slógu í gegn í þremur af þekktustu böndum Bretlands á sjöunda áratug síðustu aldar. Einn sem söngvari og seinna laga- og textahöfundur í ryðmablússveit þeirri sem nú er orðin hvað langlífust og sprækust allra rokksveita, annar sem gítarleikari, laga- og textahöfundur í hljómsveit sem kölluð hefur verið enskust enskra sveita og sá þriðji sem bassaleikari, söngvari, laga- og textahöfundur í sveit sem breytti poppsögunni meir en flestar aðrar.
Bræðurnir yngri eru misþekktir. Bróðir söngvarans síspræka er nánast óþekktur en gaf engu að síður út plötu um miðjan áttunda áratuginn sem sumir telja a.m.k. jafnast á við þær sem bróðir hans gaf út á þeim tíma. Bróðir bassaleikarans breytti sínu skoska eftirnafni í annað skoskt eftirnafn og sló á tímabili í gegn með grínsveit sem átti a.m.k. tvo smelli hérlendis, takk fyrir. Sá þekktasti af þessum bræðrum kom á sínum tíma hingað til lands með hljómsveit bróður síns eins og lýst er í íslenskri tíðarandaskáldsögu sem út kom á síðasta ári. Hann samdi líka einn þekktasta smell sveitarinnar hvers heiti var síðar notað sem titill á íslenska glæpasögu um fyrrum drykkfelldan blaðamann sem nú hefur að mestu sagt skilið við Bakkus.
Spurt er:
1. a) Hvað heita bræðurnir ofurfrægu?
b) Hvað heita bræðurnir minna frægu? (Einungis þarf að svara annarri spurningunni)
2. Nefnið a.m.k. aðra íslensku skáldsöguna sem á var minnst.
Verðlaunin eru enn sem fyrr gjafakort fyrir nýju skírteini á Borgarbókasafni eða endurnýjun á því gamla. Sendið svörin til:
gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is .
Til baka