Í Kringlusafni er vakin athygli á þjóðsögum og ævintýrum í viku bókarinnar sem stendur nú yfir. Leikskólar hverfisins mæta í daglegar ævintýra- og þjóðsögustundir og börnin í Stakkaborg settu upp sýningu tengda þjóðsögum og ævintýrum. Í morgun komu börnin í Hamraborg og sungu veturinn á braut, ekki veitti nú af í þessu vota og vindasama veðri.
Börninn í Hamraborg syngja veturinn á braut í Kringlusafni og í bakgrunn má sjá hluta af þjóðsagnasýningu barna úr leikskólanum Stakkaborg.