Þann 29. júlí síðastliðinn var haldið í bókmenntagöngu frá Sólheimasafni, undir yfirskriftinni „Hús skáldanna“. Í göngunni var staldrað við heimili ýmissa rithöfunda sem búa eða hafa búið í hverfinu, s.s. Einars Más Guðmundssonar, Andra Snæs, Steinunnar Sigurðardóttur, Thors Vilhjálmssonar og Hallgríms Helgasonar og lesið úr verkum þeirra.
Gangan tók rétt um klukkutíma og yfir 80 gestir sóttu hana. Gestum var að sjálfsögðu boðið að grípa í hljóðnemann ef þeim fannst eitthvað á skorta á og nýttu sér það margir og sumir oftar en einu sinni. Þannig var gangan allt í senn gagnvirk, skemmtileg og fróðleg fyrir alla, jafnt skipuleggjendur sem þátttakendur.
Leiðsögumaður var Arngrímur Vídalín og Þórhallur Þórhallsson las úr verkum skáldanna, en þeir eru bókaverðir á Sólheimasafni.