Áhugavert á safninu
Augnablik og spenna

Augnablik eftir Malcolm Gladwell, Bókafélagið, 2009.
Augnablik er ein þessara bóka sem hefur farið sigurför um heiminn á mettíma. Höfundurinn sýnir fram á og segir sögur af því hvernig skyndiákvarðanir geta reynst betur en vel ígrundaðar. Þetta snýst allt um eðlisávísunina, að treysta á hugboðin og stökkva.
Er bókin til á þínu safni? Athugaði í Gegni!
Og án þess að hugsa of mikið er best að skella sér í spennusögurnar. Þó sumarið sé nú brátt á enda er engin ástæða til að hætta að lesa þessa tegund bókmennta, þær eiga ekki síður við í skammdegi og frosthörkum. Hríðin á glugganum, kakó í bollanum og krimminn í höndunum... unaðslegt. Þessi sena á e.t.v. ekki alveg við á næstunni, en spennusögur eiga alltaf við, allan ársins hring.
City of Veils eftir Zoë Ferraris, Little Brown 2010.
City of Veils er þriðja bók Ferraris og eins og í fyrri bókum hennar er sögusviðið Jeddah í Saudi Arabíu. Eyðumerkurleiðsögumaðurinn Nayir Sharqi og réttarmeinafræðingurinn Katya Hijazi eiga þátt í að leysa morð á ungri konu sem finnst illa útleikin og hálfnakin. Í fyrstu er talið að um þjónustustúlku sé að ræða en annað á eftir að koma í ljós.
Bækur Ferraris (sem er amerísk, en bjó eitt ár í Jeddah með fyrrverandi eiginmanni sínum sem er frá Saudi Arabíu) eru sérstakar fyrir það að gerast í Saudi Arabíu sem hingað til hefur ekki verið algengur bakgrunnur spennusagna. Ferraris bregður áhugaverðu ljósi á þetta samfélag þar sem staða og samskipti kynjanna fylgja ströngum reglum og setur það aðalpersónunum þó nokkrar skorður í samvinnu þeirra og –skiptum.
Er bókin til á þínu safni? Athugaði í Gegni!
Play Dead eftir Harlan Coben, The Orion Publishing Group Ltd. 2010.
Harlan Coben er margverðlaunaður metsöluhöfundur og hefur hann skrifað fjölda spennusagna sem þýddar hafa verið á fjölmörg tungumál.
Brúðkaupsferð Lauru og Davids endar snögglega þegar David fær sér sundsprett dauðans, í orðsins fyllstu merkingu, og snýr ekki aftur. Ósátt við ótímabæran dauða eiginmanns síns fer Laura að róta í fortíð hans og ýmsir óvæntir hlutir líta dagsins ljós.
Er bókin til á þínu safni? Athugaði í Gegni!
U is for Undertow eftir Sue Grafton, Pan Books 2010. Sue Grafton er Íslendingum vel kunnug fyrir stafrófspennusagnaröð sína, en nokkrar bóka hennar hafa verið þýddar á íslensku. Sue er nú komin að „uinu“, þannig að þeim fer nú fækkandi bókunum sem koma út í þessum flokki.
Michael Sutton hefur samband við aðalsöguhetjuna, einkaspæjarinn Kinsey Millhone (sem er skemmtileg týpa, orðheppin og fyndin), vegna minningar úr barnæsku sinni sem hann tengir nú skyndilega við mannrán og morð. Kinsey kemst að ýmsu, ekki bara um þetta einstaka mál heldur einnig heimaborg sína, Santa Teresa í Kaliforníu.
Er bókin til á þínu safni? Athugaði í Gegni!

Fat Tuesday eftir Sandra Brown, Hodder & Stoughton, 2008.
Fat Tuesday vísar til Mardi Gras (sem í bókstaflegri þýðingu þýðir feitur þriðjudagur) hátíðarinnar í New Orleans, en borgin sú er sögusvið þessarar sögu. Það fer lítið fyrir hátíðahöldunum í bókinni en því meira af spillingu og sora. Burke Basile, aðalhetjan, er þó hjartahrein og góð lögga, sem hefur sett sér það markmið að ráða niðurlögum Pinkie Duvall, aðalverjandi harðsvíruðustu glæpamannanna í borginni.
Er bókin til á þínu safni? Athugaði í Gegni!
Guðríður Sigurbjörnsdóttir
Til baka