Æringi, sem er litli bróðir bókabílsins Höfðingja, ætlar að heimsækja alla leikskóla Reykjavíkur og bjóða börnunum í sögustund. Efnt var til samkeppni meðal myndlistarmanna um skreytingar á sögubílinn og bar Brian Pilkington sigur úr býtum. Ævintýralegar myndir hans sem meðal annars sýna tröll, dreka, úlf, grísi og börn prýða nú bílinn.Verkefnisstjóri sögubílsins, leikkonan María Pálsdóttir, mun ásamt barnabókavörðum Borgarbókasafns skipuleggja ferðir Æringja. Ætlunin er að lesa og segja sögur í bílnum en einnig eru uppi áform um samstarf við einstaklinga og stofnanir. Sögubílsstjórinn auglýsir sérstaklega eftir eldri borgurum sem langar að koma í bílinn og segja þeim yngri frá atburðum eða aðstæðum úr eigin bernsku. Það verður ánægjulegt að brúa kynslóðabilið í sögubílnum.
Allar nánari upplýsingar veitir María Pálsdóttir í síma 664 7718, maria.palsdottir@reykjavik.is
Hekla hf og Þróunarsjóður leikskólaráðs styrkja verkefnið