Auður Vésteinsdóttir myndlistarmaður sýnir í Artóteki Borgarbókasafns á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15. Auður lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist frá textíldeild skólans árið 1972. Hún lauk námi í uppeldis- og kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 1989. Auður hefur haldið ellefu einkasýningar á Íslandi og erlendis og tekið þátt í á fimmta tug samsýninga. Myndefnið sækir Auður einkum í náttúruna en litbrigði, form og línuspil hafa verið aðalviðfangsefni hennar um árabil. Sýningin stendur til 20. apríl. Á henni eru collageverk og textílverk ofin með hör, ull og hrosshári.