Margt var um manninn á aðalsafni Borgarbókasafns á Menningarnótt. Boðið var upp á kaffi frá kaffihúsinu Café Haiti og kunnu gestir safnsins vel að meta það. Dagskráin var fjölbreytt og með fjölmenningarlegu sniði. Opnuð var sýningin Viewpoint en hún samastóð af vídeóverkum Sub Rosanna Unu Bjarkar Sigurðardóttur og Sögu Ásgeirsdóttur um innflytjendur á Íslandi. Sögustund var fyrir börnin þar sem lesið var á íslensku, dönsku, arabísku og spænsku. Tékkneski þjóðlagahópurinn Osminka dansaði. söng og lék á hljóðfæri. Darren Foreman las upp íslensk ljóð, leiktexta og sögubrot á ensku, Auður Ólafsdóttir las úr verðlaunasögu sinni Afleggjaranum og Toshiki Toma las eigin ljóð. Hljómsveitin Reimar skemmti gestum og gangandi, Halldóra Ársælsdóttir, sigurvegari í fyrsta ljóðaslammi Borgarbókasafns flutti sigurslammið og Juan Alberto Borger del Pino fjallaði um og flutti kúbverska tónlist og sýndi kúbverska dansa. Að vanda gátu gestir búið til eigin ljóð úr niðurklipptum orðum, en að þessu sinni voru orðin ekki einungis á íslensku heldur einnig á ensku, frönsku, þýsku, pólsku og spænsku.
Salmann Tamini las á arabísku
Magdalena Mejia las á spænsku
Þjóðlagahópurinn Osminka
Hljómsveitin Reimar
Klippiljóðin voru á sínum stað
Halldóra Ársælsdóttir
Juan Borger del Pino
Darren Forman
Auður Ólafsdóttir
Toshiki Toma