Ljóðslamm er nú orðin einn af árlegum viðburðum á Borgarbókasafni. Keppnin fer fram á Safnanótt, í aðalsafni og er hún ætluð ungu fólki. Ákveðið þema er hvert ár og hafa þau verið spenna, hrollur og væmni.
Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs eða ljóða þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn eða gjörninginn en á ljóðið sjálf. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist og miðað við að flytjandi eða flytjendur fari með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leiklist. Hvort sem er einstaklingur eða hópur getur flutt ljóðið.
Dæmi: Tónlist (undirspil/millispil)RappHljóðmynd (einhverjir hljóðeffectar)Myndefni (myndband/skyggnur)Leikrænn flutningur eða dansLeiklestur
Almenn viðmið fyrir þátttakendur (og dómnefnd):Hvert atriði taki í mesta lagi 5 mínúturLjóðið verður að vera á íslenskuGæta verður velsæmis í orðbragði og þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og / eða hópumTexti 40%, flutningur 60%Tæknimál verða að vera einföld (einn skjávarpi og tjald, ekki eru aðstæður fyrir sviðsmynd nema það sem fólk getur auðveldlega tekið með sér inn á sviðið)Hámarksfjöldi í hóp: 5 manns.
Nánari upplýsingar fástu hjá Kristínu Viðarsdóttur kristin.vidarsdottir@reykjavik.is ,sími 411 6123.