Fimmtudaginn 11. desember kl. 17.00 verður opnuð sýning á verkum Kristínar Geirsdóttur myndlistarmanns í Artóteki á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Kristín lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1985-1989 en áður hafði hún lokið kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands. Hún hefur verið gestalistamaður í vinnustofum í Danmörku, Hollandi, Írlandi, Litháen, Frakklandi og á Spáni.
Kristín hefur aðallega unnið með málverk og er dýpt, yfirborð, litbrigði, gagnsæi og birta, orð sem gjarnan eru notuð þegar verkum hennar er lýst. Hún vinnur út frá einföldum formum, lætur litinn renna eða drjúpa á flötinn sem getur verið strigi, tré, pappír eða annað.
Á sýningunni í Artótekinu eru olíumálverk unnin á masónít og pappír.
Kristín hefur fengið margar viðurkenningar fyrir störf sín m.a. var hún bæjarlistamaður Kópavogs árið 1995 og staðarlistamaður í Skálholti 2002. Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Kópavogs, Hafnarborg, Listasafn Háskóla Íslands, Art Hall Seinäjoki í Finnlandi, stofnanir, fyrirtæki og einkaaðilar eiga verk eftir Kristínu.
Artótekið leigir út og selur íslenska samtímamyndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Sýningin stendur út janúar.
Opið er mánudaga kl. 10-21, þriðjudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19 og um helgar kl. 13-17.