Svo skemmtilega vildi til á dögunum að Borgarbókasafnið endurheimti tvær bækur sem höfðu verið í útláni í rúm 32 ár. Þetta voru nótna- og ljóðabækur eftir Megas, myndskreyttar af honum sjálfum. Í bókunum voru enn gataspjöldin þar sem sjá mátti hvenær skilafrestur rann út, en það var semsagt 29. apríl 1976!