Jólagjöfin í ár er gjafakort fyrir ársskírteini í Borgarbókasafnið. Gjafakortin eru seld í öllum söfnum og kosta kr. 1.300. Skírteini í Borgarbókasafni veitir aðgang að 500.000 bókum, tímaritum, tónlistardiskum, kvikmyndum, tungumálanámskeiðum og fleiru og er þetta allt lánað út endurgjaldslaust þegar skírteinið er komið í hendurnar. Athugið þó að börn og unglingar fá frí skírteini til 18 ára aldurs og aldraðir og öryrkjar fá einnig frí skírteini.