Desembermarkaðurinn sem haldinn var í Gerðubergi síðastliðinn laugardag tókst með eindæmum vel. Þar ríkti frábær markaðsstemmning á um 30 básum og sölumenn af ýmsum þjóðernum. Á markaðnum gat að líta fjölbreytt úrval af íslenskri hönnun og handverki, kryddblöndur og smákökur frá Sri Lanka, nytjalist frá Mexíkó, ný og notuð föt og heimatilbúinn brjóstsykur svo fátt eitt sé talið. Jólastemmningin náði hámarki þegar Ingveldur Ýr söngkona tróð upp ásamt sönghópi sínum og söng jólalög á ýmsum tungum.
Í Gerðubergssafni - Borgarbókasafni var opnaður nýr alþjóðlegur skiptibókamarkaður. Á markaðinum eru bækur, tímarit, mynddiskar og hljómdiskar á erlendum tungumálum. Nú þegar má finna efni á albönsku, pólsku, rússnesku, spænsku og tælensku. Í safninu voru lesnar upp sögur á tælensku, pólsku og albönsku og síðan spjölluðu upplesararnir við gesti um tungumál og bókmenntir landanna. Skiptibókamarkaðurinn er kominn til að vera í Gerðubergssafni og öllum velkomið að gefa efni og taka annað í staðinn.
Desembermarkaðurinn var samstarfsverkefni Gerðubergs, Alþjóðahússins í Breiðholti og Gerðubergssafns Borgarbókasafns.