Heilahristingur –heimanámsaðstoð fyrir ungmenni af erlendum uppruna Heilahristingur er heimanámsaðstoð fyrir ungmenni af erlendum uppruna í 8. til 10. bekk Fellaskóla og Hólabrekkuskóla og verður starfræktur í Borgarbókasafninu í Gerðubergi á þriðjudögum kl. 15:15 til 16:45. Verkefnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, Alþjóðahúss og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Heilahristingur nýtur faglegs stuðnings frá Etadeild Delta Kappa Gamma oghefur fengið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Sjálfboðaliðar leiðbeina við heimanámsaðstoðina.
Betri sjálfsmynd og minna brotfall Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að ungmenni af erlendum uppruna kjósi að fara í framhaldsnám. Megináhersla verður lögð á að bjóða upp á gott umhverfi sem styður við skapandi unglingastarf, vekja ungmennin til umhugsunar um framtíðarmöguleika sína og styrkja sjálfsmynd þeirra. Bókasafnið er hlutlaus staður, opið öllum og umhverfið er frjálslegt.
Ef vel tekst til mun heimanámsaðstoð einnig verða í boði fyrir fleiri hópa og verða í fleiri útibúum Borgarbókasafns í framtíðinni.
Sjálfboðaliðar óskast Sjálfboðaliðar vinna mikilvæg grasrótarstörf í samfélaginu sem að öðrum kosti er ekki sinnt. Með því að leggja starfskrafta sína af mörkum í sjálfboðnu starfi öðlast sjálfboðaliðinn nýja sýn á samfélag sitt, líf annarra og hlotnast reynsla og færni sem nýst getur í lífi og starfi. Hafir þú áhuga á að kynna þér verkefnið frekar eða bjóða þig fram til starfsins, er þér velkomið að hafa samband við Þór Gíslason, verkefnastjóra hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands, í síma: 545-0406, eða á netfangið thorgisla@redcross.is
Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn í Gerðubergssafni mánudaginn 9. febrúar kl. 17:30. Sjálfboðaliðar verkefnisins eru hvattir til að mæta og einnig þeir sem hug hafa á því að kynna sér verkefnið eða gerast sjálfboðaliðar.