Viltu taka þátt í að velja bestu barnabók liðins árs?
Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabækur af þeim sem komu út árið 2008. Hver lesandi má velja allt að 3 bækur með því að fylla út kjörseðill í bókasöfnum eða með því að senda póst á thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is.
Úrslit verða kynnt við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, 23. apríl. Tvær bækur verða verðlaunaðar, önnur frumsamin íslensk og hin þýdd. Skila þarf atkvæðum fyrir 20. mars. Heppnir þátttakendur fá glaðning.
Úrval þeirra bóka sem hægt er að velja (PDF 5,18 MB, opnast í nýjum glugga)
Kjörseðill sem hægt er að skila inn í almennings- og skólabókasöfn um land allt (PDF 69 KB).