Fréttayfirlit
Dularfullir atburðir á Borgarbókasafni
Í tilefni af áttræðisafmæli Tinna standa Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlistaskólinn í Reykjavík fyrir myndasögusamkeppni fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára á vormánuðum 2009.
Í tengslum við samkeppnina verður haldin sýning á þeim verkum sem hljóta viðurkenningu, auk valinna verka annarra þátttakenda.
Frestur til að skila verkum er til 2. maí en sýningin verður opnuð laugardaginn 6. júní á Borgarbókasafninu.
Veitt verða ein verðlaun en að auki hljóta fimm verk viðurkenningu.
Hámarkslengd efnis eru fjögur A4 blöð eða tvö A3 blöð (öðru megin) og eru þátttakendur beðnir að nota frekar þykkan pappír en ekki venjuleg fjölritunarblöð til að tryggja að verkin verði fyrir sem minnstu hnjaski í upphengingu.
Vinnuaðferðin er algerlega frjáls en þema samkeppninnar og sýningarinnar er: “Dularfullur atburður” og er það hugsað til heiðurs hinni áttræðu myndasöguhetju, sem einmitt fæst við lausn á dularfullum atburðum í ævintýrum sínum.
Verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasögutema og / eða tengjast myndasögum á einhvern hátt.
Þátttakendur eru beðnir að skila verkunum inn á Borgarbókasafnið, aðalsafn, Tryggvagötu 15, í umbúðum merktum: “Dularfullur atburður”, myndasögur 2009. Vinsamlega athugið að láta fylgja fullt nafn, fæðingarár, símanúmer og tölvupóstfang.
Nánari upplýsingar veita Úlfhildur Dagsdóttir (ulfhildur.dagsdottir@reykjavik.is) og Þorbjörg Karlsdóttir (thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is), eða í síma: 4116100.
Plakat myndasögusamkeppninnar (PDF 0.51MB)
Til baka