Borgarbókasafn Reykjavíkur hélt keppni í ljóðaslammi annað árið í röð á Safnanótt föstudaginn 13. febrúar. Þema kvöldsins var hrollur og er óhætt að segja að þátttakendur hafi brugðið upp fjölbreyttum myndum af því viðfangsefni og var metnaður þeirra mikill. Fimmtán ungmenni á aldrinum 15 til 21 árs tóku þátt að þessu sinni og var það samdóma álit dómnefndar að keppnin hafi verið mjög jöfn og afar erfitt að velja á milli atriða.
Theodóra Fanndal Torfadóttir, Helga Friðriksdóttir, Dagrún Aðalsteinsdóttir, Björg Skarphéðinsdóttir, Hrafnhildur Jónsdóttir: Ég kynni til sögunnar hið svokallaða líf
Björk Þorgrímsdóttir: Barnamál
Ásta Fanney Sigurðardóttir: Eine kleine hrollvekja
Ástríður Tómasdóttir: Eine kleine hrollvekja
Kristján Klausen: Ég hélt
Móna Sif Hadaya: Myrkur
Bryndís Ósk Ingvarsdóttir, Júlíana Kristín Jóhannsdóttir og Thelma Björnsdóttir: Nartað í hjarta
Vingnir pÁ: Ávarp forsætisráðherra
Fyrstu verðlaun hlutu Ásta Fanney Sigurðardóttir og Ástríður Tómasdóttir fyrir Eine kleine hrollvekja
Önnur verðlaun hlutu Bryndís Ósk Ingvarsdóttir, Júlíana Kristín Jóhannsdóttir og Thelma Björnsdóttir fyrir Nartað í hjarta
Þriðju verðlaun fékk Kristján Klausen fyrir Ég hélt