Á konudaginn, sunnudaginn 22. febrúar, voru 5 ár liðin frá því að Ársafn var formlega opnað. Í tilefni dagsins var boðið upp á kaffi og kleinur og söng barnakór Grafarholtssóknar fyrir gesti.
Á afmælisárinu verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í safninu og verða atburðirnir auglýstir jafnóðum.
Bergrún Bjarnadóttir og Sigurbjörg Björnsdóttir starfskonur Ársafns í sínu fínasta pússi.