Þá er komið að getraun marsmánaðar sem snýst um kvikmyndir. Um er að ræða þrjá hæfileikaríka kvikmyndaleikara sem allir slógu í gegn í hlutverkum ungra óróaseggja.Tveir hinna eldri á sjötta áratug síðustu aldar, annar sem tortrygginn og ofbeldisfullur mágur í mögnuðu Suðurríkjadrama, hinn sem unglingur í uppreisn gegn borgaralegum gildum veiklynds föður og drottnandi móður. Yngsti leikarinn vakti fyrst athygli nokkrum áratugum seinna í hlutverki smákrimma sem um stund slæst í för með tveimur vinkonum á flótta undan laganna armi.Þótt snoppufríðir væru máttu þeir allir á sínum ferli sæta miklum en missannfærandi útlits- og aldursbreytingum í hlutverkum sem þeir svo voru tilnefndir til óskarsverðlauna fyrir. Tveir leikaranna eru nú látnir. Sá í miðið dó ungur, sá elsti fyrir nokkrum árum en sá yngsti er enn í fullu fjöri.Spurt er:1. Við hvaða leikara er átt?2. a) Hvað heita myndirnar sem þeir slógu í gegn og lýst er hér að ofan? b) Hvað heita myndirnar sem þeir sættu hinum róttæku aldursbreytingum í og fengu óskarsverðlaunatilnefningar fyrir?
Athugið að nóg er að svara öðrum liðnum í spurningu tvö. Verðlaunin eru enn sem fyrr vegleg eða gjafabréf fyrir nýju skírteini á Borgarbókasafni eða endurnýjun á því gamla.
Sendið svörin á: gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is