Föstudaginn 20. mars kl. var opnuð sýning á verkum Guðjóns Ketilssonar myndlistarmanns í Artóteki. Sýningin nefnist: Fyrirgefðustytturnar og er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Sjá http://www.artotek.is
Guðjón stundaði myndlistarnám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám við Nova Scotia College of Art and Design í Halifax, Kanada. Guðjón vinnur að mestu að gerð teikninga og skúlptúra. Í verkum hans er mannslíkaminn í forgrunni, nærvera hans eða fjarvera. Hann hefur og unnið mikið með hversdagsleg tengsl okkar við líkamann, allt frá fötunum sem við klæðumst, hárgreiðslum og skófatnaði, sem breytist og aðlagast stærð, lögun, hitastigi og hreyfingum líkamans. Guðjón hefur einnig unnið talsvert með framlengingu á líkamanum, s.s. verkfæri og sögu verkfæra sem heimild um ástand mannsins.
Á sýningunni eru skúlptúrar, blýantsteikningar og myndbandsverk. Aðspurður um verkin segir Guðjón þau vera tvær seríur: „Annars vegar postulínsstytturnar á hillum, sem eru vísun í heimilisumhverfi. Í samhengi við þær gerði ég myndband sem sjálfstætt verk. Hins vegar er hér posulínsgripur á snúningshillu, gerður úr þremur englastyttum. Þar hef ég áhuga á þessum brotum, bræðingi líkamsforma og að taka þá úr samhengi við líkamann. Ég sýni einnig seríu blýantsteikninga, sem ég hef teiknað af þessum sama grip og hugsa sem einskonar framhald af honum.“
Guðjón hefur haldið á þriðja tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga, heima og erlendis, m.a. í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Hollandi, Spáni og Ástralíu og á verk á öllum helstu söfnum landsins og víða erlendis. Einnig hefur hann unnið á ýmsum alþjóðlegum vinnustofum og verið valinn í fjölda samkeppna um útilistaverk. Guðjón hlaut Menningarverðlaun DV árið 2000 og Verðlaun Listasafns Einars Jónssonar árið 2001.
Artótekið leigir út og selur íslenska samtímamyndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Sýningin stendur til 26. apríl. Opið er mánudaga kl. 10-21, þriðjudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-19 og um helgar kl. 13-17.