Áhugamenn um þýsku og þýska tungu og menningu ættu nú að kætast því Borgarbókasafni barst veglegur pakki frá Goethe stofnuninni í Kaupmannahöfn. Í pakkanum voru meðal annars nýjar og klassískar skáldsögur fyrir börn og unglinga, þýsk tungumálanámskeið, hljóðbækur og tónlist. Samkvæmt Beate Detlefs forstöðumanni Goethe stofnunarinnar eigum við von á meiru! Óneitanleg vegleg og glæsileg viðbót við safnkostinn og kunnum við Beathe og Goethe stofnuninni bestu þakkir fyrir!
Starfsmenn Borgarbókasafns ásamt Beate Detlefs og gjöfinni góðu.