VIKA BÓKARINNAR Í BORGARBÓKASAFNI - 21. - 26. APRÍL Starfsmenn í öllum söfnunum sex fjalla um uppáhaldsbækurnar sínar eða aðrar sem þeir vilja mæla með og verður þeim bæði stillt út á söfnunum og vakin athygli á þeim á heimasíðunni og á Bókmenntavefnum - www.borgarbokasafn.is / www.bokmenntir.is.
Þá geta börn á öllum aldri freistað gæfunnar dagana 20. - 25. apríl og fengið að láni innpakkaðar bækur sem starfsmenn í öllum söfnum velja handa þeim í pakkana. Í Kringlusafni verður vakin athygli á þjóðsögum og ævintýrum fyrir börnBörnin í Stakkaborg verða með sýningu á bókasafninu sem tengist því efni. Leikskólar hverfisins mæta í daglegar ævintýra- og þjóðsögustundir og á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 22. apríl kl. 11.30, munu elstu börnin í leikskólanum Hamraborg koma í heimsókn og syngja veturinn á braut . Allir velkomnir.
Sólarhátíð á Sumardaginn fyrsta í aðalsafniÞað verður sólskin og mikið um dýrðir fyrir börn og fullorðna í aðalsafni á sumardaginn fyrsta, sem í ár er einnig dagur bókarinnar. Bókaverðlaun barnanna verða afhent við hátíðlega athöfn, en verðlaunabækurnar eru valdar af 6 – 12 ára börnum af öllu landinu. María Þórðardóttir leikkona afhendir verðlaunin og syngur með börnunum ásamt Soffíu frænku, sem gefur sér tíma til að líta í heimsókn. Hún er annars önnum kafin við að siða til ræningja í Kardimommubænum á fjölum Þjðleikhússins. Ólöf Sverrisdóttir sögukona Æringja segir sólarsögu eftir verðlaunafhendinguna og síðan mun Örnólfur Thorlacius setjast undir sólina, fræða gesti um sólkerfið og svara spurningum um heima og geima. Loks verður sólarsmiðja í umsjón listakonunnar Kristínar Arngrímsdóttur. Safnið verður opið kl. 13.00-17.00 og hefst dagskráin kl.13.30. Allir velkomnir.