Fréttayfirlit
Bókaverðlaun barnanna og sólarhátíð
Bókaverðlaun barnanna voru veitt á sólarhátíð á sumardaginn fyrsta í aðalsafni Borgarbókasafns, en verðlaunabækurnar eru valdar af börnum á aldrinum 6-12 ára. Kristín Helga Gunnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir bók sína Fíasól er flottust og Guðni Kolbeinsson fékk verðlaun fyrir þýðingu sína á bókinni Skúli skelfir og villta, tryllta tímavélin. Kristín Helga Gunnarsdóttir var stödd norðan heiða og mun því taka við sínum verðlaunum á Amtsbókasafninu á Akureyri um næstu helgi. Guðni Kolbeinsson var erlendis og tók dóttir hans, Kristín Berta Guðnadóttir, við verðlaununum og flutti ræðu fyrir hans hönd. Tíu börn voru dregin úr hópi þeirra sem tóku þátt í að velja og fengu þau viðurkenningu fyrir þátttöku sína. Soffía frænka gaf sér tíma til að kíkja í heimsókn, Sóla sögukona í Æringja sagði sögu af sjálfri sér, Örólfur Thorlacius fræddi áhugasama gesti um sólina og sólkerfið og Kristín Arngrímsdóttir, myndlistamaður, stýrði sólarföndursmiðju.

Kristín Berta Guðnadóttir tók við verðlaununum fyrir hönd föður síns Guðna Kolbeinssonar

Tíu börn fengu viðurkenningu fyrir þátttöku sína

Soffía frænka söng uppáhaldslagið sitt Fussum svei

Sóla sögukona var svolítið skelfileg fyrir suma

Þó lítið færi fyrir sólinni utandyra var nóg af sólskini í föndursmiðju Kristínar Arngrímsdóttur

Örnólfur Thorlacius miðlaði að fróðleik sínum um sólina og sólkerfið
Til baka