Þorgrímur Kári Snævarr hlaut sigurverðlaun í myndasögusamkeppni Borgarbókasafns og Myndlistaskólans í Reykjavík. Þorgrímur Kári var að ljúka 10. bekk í Hagaskóla og hefur einnig sótt mörg myndasögunámskeið í Myndlistaskóla Reykjavíkur, nú síðast námskeiðið „myndasögur fyrir ungt fólk”. Hann hefur haft áhuga á myndasögugerð frá unga aldri og byrjaði að eigin sögn á því að æfa sig með því að teikna eftir persónum Andrésblaðanna þegar hann var lítill. Auk Þorgríms hlutu sex þátttakendur viðurkenningar fyrir framúrskarandi sögur og myndir en þau eru Alfreð Hrafn Magnússon, Elísabet Rún Þorsteinsdóttir, Eysteinn Þórðarson, Gunnhildur Mist Gautsdóttir, Lilja Hlín Pétursdóttir og María Elísabet Ragnarsdóttir. Þau eru á aldrinum 11 til 20 ára.
Alls bárust ríflega 60 sögur og myndir í keppnina. Í dómnefnd voru þau Björn Unnar Valsson bókmenntafræðingur og myndasöguhöfundarnir Halldór Baldursson og Lóa Hjálmtýsdóttir. Í áliti þeirra segir: „Verðlaunasögurnar eru mjög ólíkar innbyrðis og í raun erfitt að benda á ákveðin líkindi hvað varðar frásögn, umfjöllunarefni eða teiknistíl. Allar koma þær litríkum augnablikum og senum til skila á lifandi hátt með skemmtilegri framsetningu, auk þess sem öll vinnubrögð og frágangur eru til fyrirmyndar og til þess fallin að draga lesendur inn í söguna. Þannig kemur hver saga til skila sérstakri sýn á myndasöguna og þann heim sem hún kann að fanga.”
Verðlaunafhendingin fór fram í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi og þar hefur nú verið opnuð sýning á verkunum sem bárust í keppnina. Hún stendur til 5. júlí. Hér fyrir neðan má sá mynd af sigurvegurunum (Gunnhildur Mist var fjarverandi en móðir hennar tók við viðurkenningunni fyrir hennar hönd), auk dómnefndar og fulltrúa Myndlistaskólans í Reykjavík.